|
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Fyrir 734542 dögum
|
09.10.2007 13:02:47 / Heya86
Trú flytur fjöll En taktu með þér skóflu
»
29.09.2007 21:35:53 / Heya86
Ég á líka leyndarmál nininininini! En nóg um það, ákvað að skella inn grein um það sem á daga mína hefur drifið. Í sumar hóf mín að takast á við drauga fortíðarinnar og með hjálp frá yndislegum sálfræðingi er mín að vinna mikið í sínum málum. Skólinn, hann byrjaði auðvitað í haust og í skólanum hef ég fengið að kynnast tvemur yndislegum persónum, henni Dagbjörtu sem er 16 ára og gavööööðð hún er svo mikið yndi, það er sjaldan sem að maður fær að hitta engil í mannsmynd en þessi stelpa er allt sem ég vildi að ég væri, góð, klár, dugleg og rauðhærð. Dagbjört þú ert æðisleg. Svo er það hann Björgvin, hann er algjör mús, svo duglegur að læra og með einstaka persónutöfra sem hafa brætt mig eins og smjör, þið tvö eruð alveg að bjarga skólagöngu minni og ég hlakka til að fá að kynnast ykkur betur og sjá ykkur þroskast. Ég hef lítið verið að djamma, ég hef reynt að en málið er bara að mér finnst áfengi svo vont á bragðið, það er eins og með kaffi, afhverju að drekka það ef að það er svona vont? Já og meðan ég man, ég fékk 9,5 í stæðrfæði but anywho. Ég hef alls ekkert að segja nema: uss, ég á mitt litla leyndarmál, not gonna tell thou untill I know for sure if I''ve gotten what I am aiming for.
»
03.09.2007 02:38:14 / Heya86
Ég sit hérna upp í Háskóla Reykjarvíkur, á að vera í stærðfræði en þess í stað sit ég við tölvuna og blogga, rétt í þessu var mín að skoða gömul blogg hjá vinum og kunningjum og við það blossaði fortíðarþráin upp og ég finn hvað mig langar svakalega mikið að leggja í hann, fara burt í 3-6 vikur. Fara til Spánar
Djamma þar, fara til Benidorm, Mundo Mar,
Terra Mítica
Ohh mín kæra sól hvað ég þrá þig mikið, hvítar strendur, sandalar, markaðir, ódýr föt, Habaneras, BOOK WORLD, lyktin sem tekur á móti manni þegar stigið er út úr flugvélinni, göngutúrarnir um miðbæjarsvæðið, sverða búðin, aquapolish, svölu kvöldin, sundlaugarnar, hitinn, QUEEN BURGERS, besta Coca cola í heimi, strandarlengjan í Torriveja þar sem hægt er að ganga um og skoða allskonar mannlíf, Alicante 
með fallega kastalann sinn sem ég á en þá eftir að ganga upp í.
Að geta setið úti á kvöldin í engu nema pilsi og bol, fengið sér einn kaldann í góðra vina hóp, spjallað, spilað, drukkið meira, vakna eldhress daginn eftir og skella sér í ískalda sundlaug,
liggja á sólbekk og sleikja sólina, Go-Kart bílarnir, Abbye’s. Djúsinn minn þessi þarna með fullt af ávöxtum í eins og ástaraldin, mandarínum, vínberjum og fullt, fullt af fleiru gómsætum ávöxtum.  Ohh þú dýrlega Nostralgía hví þarftu að þjaka huga minn á þessari stundu. Allir þessir skór sem ég gæti keypt ef ég væri úti núna, allar buxurnar, peysurnar, bolirnir. Vá hvað ég syrgi þau föt sem mögulega gætu verið mín.
»
22.08.2007 18:24:43 / Heya86
Það er eitthvað sem gerist þegar litadýrðin grípur hvert tré, hverja jurt, eitthvað sem ég finn þegar ég vakna á morgnanna og þessi sérstaka lykt tekur á móti mér, það er eitthvað sem fyllir hjarta mitt af þessari gamall kunnu tilfinningu sem ég hef fengið á hverju ári frá því að ég man eftir mér. Þetta eitthvað gerist einnig þegar það fer að myrkva og snjóinn fer að kyngja niður, þá vil ég helst kúra úti í sveit þar sem trén kikna undan þunga snjósins, þið vitið öll hvað ég er að tala um, sem sagt þegar greinarnar svigna vegna snjós, í litlum fallegum tré kofa við arineldinn, liggjandi á hlýjum feld með kakóbolla eftir að hafa endað við það að smíða eitt stykki Snæfinn. Kúra í myrkrinu og lesa góða bók við dauft ljós. Ný búin að borða yfir sig af dýrindis hamborgarhrygg að hætti ömmu, umkringd öllum sem ég elska. Já, já ég er að koma mér að efninu en það er ekkert annað en ÞAÐ ERU AÐ KOMA JÓL
»
13.08.2007 07:47:15 / Heya86
Ok hér er svo
lag sem allir þurfa að kunna áður en farið verður í
útilegunna næstu helgi (lesa grein fyrir neðan). Það er
kallað "elsku typpi" og er með eindæmum
fyndið.
Textann höfum við svo
hér:
Dear Penis,
I don't think I like
anymore,
You used to watch me shave,
Now all u do is stare at the floor.
Oh dear Penis,
I don't like you anymore.
It used to be u and me,
A paper towel, and a dirty magazine,
That's all we needed to get by.
Now it seems things have changed,
I think that your the one to blame.
Dear Penis,
I don't like u anymore.
Now he sings,
Dear Rodney,
I don't think I like u anymore,
'Cause when u get to drinkin'
You put me places I've never been before.
Dear Rodney,
I dont like u anymore.
Why can't we just get a grip,
On our man to hand relationship.
Come to terms with truly how we feel.
If we put our heads together,
We'd just stay home forever,
Dear Penis,
I think I like you after all.
Oh and Rodney,
While yer shavin',
Shave my balls
»
10.08.2007 00:06:12 / Heya86
HEYRIÐ ÞIÐ ÞAÐ!!!! SÍÐASTA
ÚTILEGA SUMARSINNS VERÐUR FARINN HELGINA 17-19 ÁGÚST, EINS OG
AÐRIR HÁSKÓLA OG FRAMMHALDSKÓLANEMAR VITA ÞÁ BYRJAR SKÓLINN
20 ÁGÚST SVO ÞETTA ER SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ LYKTA EINS OG
SKÚNKUR SÖTRANDI VOLGANN BJÓR, SYNGJANDI BUBBA LÖGIN ÚTI Í
GRÆNI NÁTTÚRU.
EKKI LÁTA ÞIG
VANTA

Eins og planið er núna þá verður farið austur á Laugarás
þar sem er öll sú dúndur þjónusta sem nútímamaðurinn vill hafa með
sér í útilegu.. eins og t.d. rennandi vatn og salerni (Júlíanna ég
skít ekki í poka sama hvað þú segir). Ekki aðeins verður þetta
síðasta útilega sumarsinns heldur verður þetta einnig afmælishelgin
mín svo það er eins gott að þið komið öll með því ég vil hafa alla
vini mína hjá mér á afmælinu, sér í lagi þar sem föðurómyndin mín
lætur sig alltaf vanta á þessum degi og þið verðir bara að bæta mér
það upp .
Ef þið vitið ekki hvað á að taka með í útilegu þá er hér
listi svo þið séuð með það á hreinu og ég hlusta ekki á neinar
afsakanir.
Ullarsokka/ullarbrækur (tek það aldrei með mér en mamma
segir að það sé nauðsinn)
Hlý föt og nóg af þeim
fullt af sokkum og nærbuxum, ég meina það er í lagi að
lykta eins og skúnkur en hefur eitthver fundið táfýlu af
þeim?
svefnpoka eða sæng og kodda.
tjald eða redda sér inn hjá eitthverjum
sundföt því eins og allir vita er eina leiðinn til að
bæta skúnkslyktinna í útilegu að fara í klórbað.
kælibox fullt af mat.
bjór
TEQUILA
meiri bjór
það "létt vín" "sterkt vín" sem yður líkar best að kingja
niður
Doddi sér um gítarinn í ferðinna svo engar áhyggjur af
honum en þér er velkomið að taka með gítarspilara því Doddi kann
bara eitt lag á gítar og að hlusta endalaust á "I been throw the
desert on a horse with no name" þá man maður ekki nafnið sitt
sjálfur
KEX og SNAKK er nauðsinnlegt að hafa með.
Góða bók
Góðar verjur
Hlý föt handa Kjartanni því hann gleymir sínum
alltaf.
útilegustól fyrir sitt eigið rassgat.
BORÐ sem ekki brotnar þegar það er sett upp.
Gott fólk
Grill
góða skapið
Og ekki gleyma slökkvitæki og ólar handa Jóhanni
Linnet.
»
31.07.2007 22:12:15 / Heya86
Elsku Eysteinn Bróðir og
Bergsveinn afi
Innilega til hamignju með afmælið
báðir tveir.
No Stone... skemmtu þér vel á
spáni og Afi, við borðum kökur heima hjá þér í kvöld, þú kíkir
kannski á okkur og verður með okkur í anda.
»
08.07.2007 23:01:50 / Heya86
Maggi minn til hamingju með afmælið
»
06.07.2007 01:46:48 / Heya86
DODDI

Til hamingju með
afmælið elsku ástin mín
»
05.07.2007 08:14:22 / Heya86
HEIÐRÚN
BERGLIND FINNSDÓTTIR ER EKKI TIL LENGUR HÉR MEÐ HEITI
ÉG:
HEIÐRÚN
BERGLIND MARGRÉTARDÓTTIR
»
27.06.2007 00:40:11 / Heya86
Ég er illa
sleginn.. Í dag fékk ég
hræðilegar fréttir, skólasystir mín úr Ártúnsskóla var
jarðsungin í dag, Susie Rut Einarsdóttir fædd 85’ var með mér í
skóla í 2 ár gladdi okkur skólasystkinin með undir fögrum söng,
fiðluleik og mig þá sérstaklega því þegar hún
kom í skólann snarminkaði eineltið sem ég varð fyrir og vá hvað
ég var þakklát fyrir hana þegar einn eldri bekkingurinn fór að
stríða mér og hún tilkynnti honum að hann skyldi bara gjöra svo
vel að láta mig vera þar sem ég væri dóttir Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, sem ég er auðvitað ekki en það var nóg til þess að
ég var látin í friði af þessum tiltekna strák og vinum hans, hún
sjálf vissi auðvitað að ég væri ekki dóttir hennar en samt gerði
hún þetta fyrir mig. Hún var einnig stelpan sem allir litu upp
til og vildu vingast við.
Ég er illa
sleginn yfir þessari frétt og það nístir mig inn að beini að svo
falleg, klár og góð stúlka skuli vera horfin. Ég
man alltaf hvað ég öfundaði hana af síða ljósa
hárinu, sjálfsörygginu og söngröddinni.
Ég
veit ekki af hverju ég skrifa þetta en mér hefur alltaf fundist
frábært að losna við tilfinningar með því að skrifa þær niður og ég
vonaði að ég myndi losna við doðann og harminn sem einhverra hluta
vegna slær um mig núna þó að ég hafi ekki hitt Susie í mörg ár eða
frá 17.júní 2000 og þrátt fyrir að ég hafi ekki þekkt hana mikið,
eiginlega ekki neitt, þá er ég svo sorgmædd, aðallega fyrir hana,
fjölskyldu hennar og vini.
Ég
vil votta aðstandendum hennar, vinum, ættingjum, föður og móður,
systur og bræðrum alla mína samúð og Guð veri með þeim í gegnum
þessa erfiðleika.
(Ég efast um að þau lesi þetta en
ef þið gerið það og ykkur finnst óviðeigandi að svo ókunnug
manneskja sé með hálfgerða minningargrein á blogginu sínu þá
endilega sendið mér póst eða skrifið við færsluna og ég tek hana út
af.)
»
25.06.2007 23:45:23 / Heya86
Nafn: Heiðrún Berglind
Finnsdóttir
Gælunafn: Heya
Fæðingardagur og ár:
17.ágúst 1986
Aldur: 21 árs
Hæð: 159
Hárlitur: brúnn
Augnlitur: gráblár
Skóstærð: 37
Stjörnumerki:
Ljón
Staður: Reykjavík
Kærasti: Þórður
Börn: Seinna
Systkini: Valþór Atli (20) Eysteinn (15) Magnús (14)
Sigrún (9) og Sigurður (7)
Gæludýr: Basli og Legó
Sjónvarpsþáttur:
Buffy, Angel,
scrubs.
Litur: Bleikur, grænn
Bjór: Jakk nei takk Smirnoff ice fyrir
mig
Fótboltalið:
gólfklúbbur
færeyinga
Matur: Jólamatur, bk kjúklingur og Lasagneað sem
Doddi kann að gera
Drykkur: Coca cola
Staður: Reykjavík
Árstíð: Vor/sumar
Dagur: föstudagur
Mánuður: Maí, júní, júlí og ágúst
Ertu hamingjusöm manneskja:
Já ó já.
Hvernig GSM áttu:
svona walkman
samlokusími
Ertu rétthent eða örvhent:
skrifa með hægri, geri allt annað
með vinstri
Ertu myrkfælin:
haha
ójá
Hefurðu einhverntímann sofnað í
bíó: Já… á
spiderman 3
Hversu sítt er hárið á þér:
axlir
Hefurðu einhverntímann brotið
bein: Neibb.
Ertu róleg týpa:
segið þið
mér.
»
22.06.2007 17:32:02 / Heya86
Hafið þið
tekið eftir því hvað ég er lélegur bloggari á
sumrin?
»
08.06.2007 15:48:52 / Heya86
Smá svona vangavelta handa þeim sem skoða bloggið
mitt... endilega gískið og athugið hvort að svarið sé
rétt...
Tíu tosa fjóra.
Tvö eru höfuðin á.
Rassinn upp og rassinn niður
og rófan aftan á.
Gískiði nú ef þið vitið
svarið þá ekki vera monthanar 
»
05.06.2007 17:48:36 / Heya86
Ohhh mín kæra stærðfræði mikið
ertu auðskiljanleg og falleg. Vá hvað ég sakna þín og jafnanna.
Mikið ofboðslega vildi ég að allt væri eins einfalt og þú. Ó hve
falleg þú ert, þér fylgir ekkert kjaftæði. Fyrir þér er aðeins
eitt rétt svar og aðeins ein rétt úrlausn. Ó hve fullkomin þú
ert og yndisleg.

Orð sem enginn hélt að ég myndi
nokkurntímann láta af vörum mér en HEI hér hafið þið
það.
Ég er byrjuð á bóklega
flugmanninum og SHIT ég hef aldrei vitað annað eins, yfirleitt hef
ég alltaf bara þurft að mæta í tíma, sitja þar og teikna eða skrópa
og sofa heima upp í rúmi, byrja svo að lesa svona 3 dögum fyrir
hvert próf og næ því með svona 7-10 en nei ekki lengur. Heiðrún
Berglind Finnsdóttir ÞARF að læra heim, lesa, mæta í tíma og spyrja
kennarann, samt skilur þessi HEIMSKA mær ekki upp né niður í neinu.
Jú ég veit að flugvélinn á að vera uppi og jörðin niðri en meira
veit ég hreinlega ekki.
Svei þér siglingarfræði, að gera
mér þennan grikk, aldrei á ég eftir að fyrirgefa þér það að vera
svo flókin og illskyljanleg.
Vei þér flugfræði, að vera svo
flókin og gera mig gráhærða langt fyrir aldur fram.
Veðurfræði, Siggi stormur má bara
eiga þig.
Mass and balance við þig hef ég
aðeins eitt að segja, don’t mess with me.
Þetta eru einu föginn sem ég hef
eitthvað verið í og meigi þau bara öll fara niður Heklu.
Ég er á engann hátt sátt við
þetta, að þurfa að leggja mig fram í eitthverju, ég hef bara aldrei
þurft þess, ekki einu sinni soduku eða hverskonar heilaþrautir,
stæðfræði kemst ekki nálægt þessum fögum í því að vera flókin (gat
ekki orðað þetta öðruvísi) GREFILLSINNS það eina sem ég skil í
þessum fögum er stærðfræðinn, hvað er eiginlega að koma fyrir mig?
Ég hef alltaf skilið allt sem sett er fyrir mig en nú á ég í
stökustu vandræðum, ég veit ekki hvort að ég geti fyrirgefið mér
það.
Bíddu bara flugmálastofnun, ég
skal sko sína ykkur að sama hvað þið ruglið í höfðinu á mér þá fæ
ætla ég mér að fá 8,5 í meðaleinkunn frá ykkur. Því meira bull sem
þið hendið í mig því stekri ætla ég að verða.
Vno, V2, Vsp og V hitt og þetta,
ég skal læra þetta allt. Kortagerðir, sama hvaða 3 tegundir þau
kort eru, ég skal geta búið svoleiðis til. Morskóðann skal ég
einnig læra og. ÞÚ vonda vonda vél, ef þú ert ekki stillt og leyfir
mér að skoða hvar allt er og hvernig það virkar þá skaltu bara vita
að ég á ágætis hamar.
Varaðu þig bara CG ég kann að
reikna út hvar þú ert og ef þú ert ekki góður við mig þá læt ég
pabba minn lemja þig.

Biðjið fyrir ykkur,
þó að þessi mad chick geti ekki flogið þá get ég það
MHÚHAHAHAHA
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|